
Jens Garðar Helgason er fæddur 1976 á Eskifirði. Hann útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1996, stundaði nám við viðskiptafræði í Háskóla Íslands frá 1997 til 2000 og hefur MBA gráðu frá Norwegian School of Economics. Jens Garðar er búsettur á Eskifirði og á þrjú börn. Eiginkona hans er Kristín Lilja Eyglóardóttir heilaskurðlæknir. Jens Garðar hefur lengi starfað í forystu sjávarútvegsins og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á sveitarstjórnarstigi. Hann var formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á árunum 2014 – 2020, varaformaður Samtaka atvinnulífsins 2017- 2020 og formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð tvo kjörtímabil.
Jens Garðar er varaformaður Sjálfstæðisflokksins og oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi.




