Þakklæti

Niðurstaðan liggur fyrir, og nú þéttum við raðirnar og undirbúum okkur fyrir stórsókn. Ég ætla að standa við það sem ég sagði í ræðu minni og vinna af krafti fyrir flokkinn okkar og landið. Fólkið í landinu verður að trúa því að við séum flokkurinn sem efnir það sem við segjum. Þannig, og bara þannig, náum við fólkinu okkar aftur heim í flokkinn.

Ég er bæði þakklátur og hrærður yfir þeim stuðningi sem ég fékk í varaformannskjöri Sjálfstæðisflokksins. Ógleymanlegur landsfundur, fullur af krafti, samstöðu og eldmóði.

Ég vil þakka meðframbjóðanda mínum, Diljá Mist Einarsdóttur, fyrir drengilega og skemmtilega baráttu. Einnig langar mig að þakka öllu því frábæra fólki sem stóð með mér, veitti mér ómetanlegan stuðning og vann af alúð að þessari vegferð.

Ég hlakka til að vinna með nýrri forystu og sjálfstæðismönnum um land allt—saman blásum við til sóknar!

Áfram Sjálfstæðisflokkurinn!


Discover more from Jens Garðar

Subscribe to get the latest posts sent to your email.

Færðu inn athugasemd